Hönnukaka


2014-11-09-matur 006

 

 

 

 

 

 

 

Hönnukaka.

Nefni þessa köku eftir tengó en hún bakað þessa köku mjög oft og oft brosti hún þegar kakan var kláruð og spurt hvort ekki væri til önnur en yfirleitt átti hún nokkar til, þekkti víst hvað okkur fannst hún góð. Sneið af þessari köku með kaldri mjólk, góð blanda.  Í uppskriftinni er hálfur bolli af rúsínum en ég hef nú grun um að tengdó hafi lætt aðeins meira af rúsínum út í skálina.

Uppskrift:

250 g smjörlíki
4 bollar hveiti
2 bollar sykur
4 tsk lyftiduft
3 egg
1/2 bolli rúsínur
1-1/2 bolli mjólk
2 tsk vanilludropar

Byrja á því að hræra smjörlíki og sykur saman.  Þegar það hefur blandast vel, þá á að sáldra hveitinu saman við, rólega til að hveitið fari ekki út um allt.  Bæta síðan lyftidufti, eggjum, ( einu í einu ) og að síðustu rúsínum.  Bæta vanilludropum út í og þynna með mjólkinni.

Baka við 180° c  í ca 1 klukkustund.

Hönnukaka

Góð kaka með kaffinu

Þessi uppskrift passar í 3-5 form, fer eftir stærð, fylla þau til hálfs.

 

 

 

 

 

 

Hönnukaka

Hönnukaka

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s