Paella


Paella er líklega þekktasti réttur Spánar en rétt eins og ítalski ættinginn “risotto” þá er paella ekki eitthvað sem er greypt í stein. Það er hægt að útbúa paellu á margs konar hátt og nota jafnt kjöt sem fisk. Hægt er að nota margvíslegar tegundir af kjöti og sjávarréttum og einnig hægt að blanda þeim saman.
Ef paellan er gerð eingöngu með sjávarfangi er hún kölluð paella marisco og nota Spánverjar bæði fisk og margvíslegar tegundir af skelfiski. Af kjöti sem gjarnan er notað má nefna kjúkling, önd og kanínu.
Spánverjar nota yfirleitt spænsk hrísgrjón sem nefnast Calasparra en þau eru líklega ekki fáanleg hér á landi. Risotto-grjónin Arborio gera hins vegar sama gagn.
Uppskriftin hér er dæmigerð Paella Mixta, eða paella þar sem blandað er saman kjöti og fiski. Það má líka nota kjúklingalæri, skötusel, krækling, humar og margvíslegan skelfisk.
• 500 g kjúklingabringur
• 300 g svínakjöt, t.d. svínarif eða svínahnakki
• 250 g grænar baunir (frosnar)
• 150 g strengjabaunir
• 150 g smokkfiskur, sneiddur í litla bita
• 100 g rækjur
• 2 tómatar, saxaðir fínt
• 1 dl ólívuolía
• 1 l kjúklingasoð
• 1 tsk paprikuduft
• 1,5 gr saffran
• 400 g Arborio-hrísgrjón
• salt og pipar
Aðferð:
Skerið kjötið í bita og sneiðið niður smokkfiskinn ef hann er heill.
Hitið upp olíuna á stórri pönnu og brúnið kjötið og síðar sjávarfangið. Bætið þá við söxuðu tómötunum. Sáldrið paprikuduftinu yfir. Bætið síðan baununum, saffran og salti út á pönnun ásamt smá soði. Látið malla í nokkrar mínútur.
Bætið þá hrísgrjónum saman við, dreifið vel úr þeim og bætið við megninu af soðinu. Látið malla í um tuttugu mínútur eða þar til grjónin eru soðin og bætið við soði eins og þarf.
Látið jafna sig í smá stund áður en borið er fram. Gott er að hafa grænt salat með.

Hér er okkar útgáfa af paellu.

Paella a la Calle Caritas
f. 4
800 g kjúklingur
1 laukur, smátt saxaður
4-6 hvítlauksrif, smátt söxuð
2 tómatar, smátt saxaðir
2 paprikur, skornar í strimla
4-6 þræðir safran
1 tsk karry
1 tsk paprikuduft
½ tsk turmerik
salt og pipar eftir smekk
1-1 ½ l kjúklingasoð
4-6 dl hrísgrjón, ósoðin
olía
Við byrjuðum á því að setja olíu á djúpa pönnu og hita vel, settum síðan laukinn, hvítlaukinn og paprikustrimlana á pönnuna og létum laukinn mýkjast en ekki steikjast. Tókum laukinn og paprikuna af pönnunni og settum til hliðar, steiktum síðan kjúklinginn en þegar hann var nærri steiktur í gegn, þá tókum við hann af pönnunni og settum á disk. Næst settum við hrísgrjónin á pönnuna og veltum grjónunum vel upp úr olíunni, þannig að þau urðu gljáandi, settum kryddið á pönnuna og síðan kjúklingasoðið. Bættum lauk, papriku og kjúklingi á pönnuna og blönduðum vel saman við grjónin. Hrærðum vel í, þannig að grjónin brynnu ekki við, vorum búin að lækka undir pönnunni, settum lok á hana og létum þetta malla í 20-30 minútur eða þar til grjónin voru tilbúin. Bætið meira kjúklingasoði út á pönnuna ef þarf. Gott er að bera sítrónubáta fram með paellunni og gott snittubrauð, auk þess að hafa salat með. Ef fólk vill má bæta rækjum eða fiskmeti út á pönnuna en okkur finnst þessi útgáfa mjög góð.

Laukur og paprika

Laukur og paprika komin á pönnuna, látin malla um stund, ekki brúnast.

 

 

 

 

 

 

 

Grjón, krydd og kjúklingasoð komin á pönnuna.

Grjón, krydd og kjúklingasoð komin á pönnuna.

 

 

 

 

 

 

 

Kjúklingabitar settir á pönnuna, öllu blandað vel saman.

Kjúklingabitar settir á pönnuna, öllu blandað vel saman.

 

 

 

 

 

 

 

Verði ykkur að góðu.

Verði ykkur að góðu.

 

 

 

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s